Skilmálar

Þjónustuskilmálar

Almennt

Þessir skilmálar gilda um þjónustu Draumabakki ehf. (kt. 480126-2030). Nánari skilmálar hvers verkefnis eru ákveðnir í samráði við eiganda hests áður en þjónusta hefst.

Verð og verðtilboð

Verð fer eftir umfangi þjónustunnar, aðstæðum og þörfum hvers hests. Verðtilboð er veitt eftir samtal og gildir samkvæmt því sem þar kemur fram.

Ábyrgð eiganda

Eigandi ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar um heilsufar, hegðun og bakgrunn hestsins, þar á meðal um bólusetningar, ormahreinsun og fyrri meðferð.

Umsjón og velferð

Við sinnum hestum í okkar umsjá af kostgæfni og setjum velferð þeirra ávallt í fyrsta sæti. Komi upp veikindi eða óhapp er haft samband við eiganda eins fljótt og auðið er.

Afbókanir

Óskir um breytingar eða afbókanir skal tilkynna með góðum fyrirvara. Nánari tímamörk eru staðfest við gerð samkomulags.

Flutningar

Hestaflutningar á vegum HestaTaxi eru háðir veðri, færð og aðstæðum. Öryggi hestsins ræður alltaf för og ferðum getur seinkað eða þeim verið frestað af þeim sökum.